Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki

9.jpg

Áhugaverðar greinar

Október 2009 - Will an Economic Crisis Give Iceland the Final Push? eftir Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur, MA í alþjóðasamskiptum og verkefnastjóra við Alþjóðamálastofnun

9. sept 2009 - Coming in from the cold, eftir Graham Avery, heiðursframkvæmdastjóra framkvæmdastjórnar ESB

Framtíð Íslands í samfélagi þjóðanna

Small States Summer School 2009

Alyson Bailes

EU4SEAS

 



EU4SEAS Rannsóknarverkefni


EU4SEAS

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur hlotið 200.000 evru rannsóknarstyrk – eða sem nemur um 30 milljónum króna – úr 7. rammaáætlun Evrópusambandsins. Styrkinn hlýtur stofnunin vegna þátttöku sinnar í verkefninu EU4SEAS, sem alls hlaut vilyrði fyrir 1,2 milljóna evru styrk.

EU4SEAS er fjölþjóðlegt rannsóknarverkefni, þar sem skoðuð verða áhrif Evrópusambandsins á milliríkjasamstarf umhverfis fjögur innhöf Evrópu – Eystrasalt, Kaspíahaf, Miðjarðarhaf og Svartahaf. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands er ein átta rannsóknarstofnana sem koma að EU4SEAS – frá fjórum ríkjum innan Evrópusambandsins og fjórum utan þess. Verkefnið mun standa yfir næstu þrjú árin og líta til samstarfs ríkja á ýmsum sviðum.

Afar misjafnt er hvernig samstarfi strandríkja á þessum fjórum svæðum er háttað og hversu náið það er – allt frá óformlegu tvíhliða samkomulagi og upp í formfastar stofnanir með þátttöku allra hlutaðeigandi ríkja.

Meginhluta rannsóknarinnar verður fjórskipt. Í fyrsta hluta verður stjórnmála- og öryggissamstarf skoðað, í öðrum hluta samstarf á sviði umhverfis- og hafréttarmála. Þriðja lota rannsóknarinnar mun beinast að orku- og samgöngumálum, en í lokaumferð rannsóknarinnar verður kannað hvaða áhrif fjórfrelsi ESB hefur á svæðunum – það er frjálsir vöruflutningar, frjáls för fólks, frjáls þjónustustarfsemi og frjálsir fjármagnsflutingar.

Í kjölfar þessara fjögurra rannsóknarlota verður niðurstöðum safnað saman og kannað hvernig hægt sé að nýta þær til að bæta hvernig málum er háttað á hverju svæði fyrir sig.

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur á sinni könnu rannsóknir á umhverfis- og hafréttarmálum og beinir sjónum sínum sérstaklega að Eystrasaltinu.

Allar nánari upplýsingar um EU4SEAS verkefnið má nálgast á vefsíðu rannsóknarinnar hér.