Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki

6.jpg

Interesting Articles

Financial Crisis in Iceland and Ireland: Does EU and Euro membership matter? By Professor Peadar Kirby, University of Limerick Ireland, and Professor Baldur Þórhallsson at University of Iceland.      

Iceland´s Economic Crash and Integration Takeoff: An End to EU Scepticism?
Article in Scandinavian Political Studies by Baldur Thorhallsson and Christian Rebhan

EU4SEAS

Framtíð Íslands í samfélagi þjóðanna


Nám



Eitt af þremur meginmarkmiðum Alþjóðamálastofnunar er að auka framboð og gæði náms um alþjóðamál og smáríki í grunn- og framhaldsnámi á háskólastigi. Til að ná því markmiði hafa stjórnarmenn í Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetri um smáríki tekið virkan þátt í mótun nýrra námskeiða, meðal annars þróun meistaranáms í alþjóðasamskiptum. Þá hafa stofnanirnar boðið bæði innlendum og erlendum stúdentum og kennurum upp á stúdenta- og kennaraskipti, rekið árlegan sumarskóla og þróað námsefni til birtingar á vefnum.

 


Sumarskóli Smáríkjasetursins. Small States and European Integration

Rannsóknasetur um smáríki hefur frá því sumarið 2003 boðið upp á sumarskóla (intensive program) um smáríki og Evrópusamrunann. Skólinn stendur í tvær vikur og er opinn fyrir bæði erlenda og innlenda stúdenta. Kennt er á ensku. Helstu fræðimenn heims á sviði smáríkjafræða hafa kennt við skólann sem er einstakt tækifæri til að sækja sér þekkingu til bestu fræðimanna heims á sviði smáríkjarannsókna og Evrópumála.

Heimasíða sumarskólans

 

Meistaranám í alþjóðasamskiptum

Meistaranám í alþjóðasamskiptum er 120 eininga hagnýtt og fræðilegt nám sem hefur að markmiði að þjálfa nemendur fyrir vinnumarkaðinn og rannsóknarvinnu með frekara nám í huga. Námið býður upp á nokkurn sveigjanleika þar sem nemendur geta valið á milli níu sviða sem þeir geta sérhæft sig í en kjarni námsins miðar að því að veita nemendum ákveðna grunnkunnáttu í alþjóðasamskiptum.

Nánari upplýsingar um námið

Diplómanám í alþjóðasamskiptum

Diplóma í alþjóðasamskiptum er hagnýtt 30 eininga námsleið fyrir þá sem lokið hafa BA eða BS námi í einhverri grein. Nemendur sem ljúka diplómanámi (30 ECTS)  með 1. einkunn geta sótt um inngöngu í MA nám í alþjóðasamskiptum og fá þá námskeiðin að fullu metin.

Nánari upplýsingar um námið

 


Diplómanám í smáríkjafræðum

Diplóma í smáríkjafræðum er hagnýt og fræðileg 30 eininga námsleið fyrir
þá sem lokið hafa BA- eða BS-prófi í einhverri grein. Fjallað er um þau tækifæri sem smáríki í alþjóðasamfélaginu standa frammi fyrir og þá veikleika sem þau þurfa að vinna bug á. Sérstök áhersla er lögð á að greina stöðu smáríkja í Evrópu einkum með tilliti til Evrópusamrunans. Einnig er sérstaklega fjallað um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu sem og stöðu Íslands í Evrópu.

Nánari upplýsingar um námið

 

Stjórnmál Norðurlandanna og smáríkjafræði (Scandinavian studies and Small State Studies)

Alþjóðamálastofnun og Smáríkjasetrið eiga aðild að samstarfi stjórnmálafræðiskorar Háskóla Íslands við stjórnmálafræðiskorir háskólanna í Seattle í Bandaríkjunum, Bergen í Noregi og Lundi í Svíþjóð um nám í stjórnmálum Norðurlanda (Scandinavian Studies) og smáríkjafræðum (Small State Studies). Nemendur geta lokið 60 eininga námi í stjórnmálum Norðurlanda og fengið sérstakt skjal til staðfestingar á því. Nemendum þessara þriggja skora á Norðurlöndunum gefst kostur á því að fara sem skiptinemar til Seattle og nemendum þaðan gefst kostur á því að taka hluta af námi sínu í þessum skólum. Nánari upplýsingar gefur Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins.