Interesting Articles
Financial Crisis in Iceland and Ireland: Does EU and Euro membership matter? By Professor Peadar Kirby, University of Limerick Ireland, and Professor Baldur Þórhallsson at University of Iceland.
Iceland´s Economic Crash and Integration Takeoff: An End to EU Scepticism?
Article in Scandinavian Political Studies by Baldur Thorhallsson and Christian Rebhan

Rannsóknir
Alþjóðamálastofnun leggur ríka áherslu á að auka rannsóknir í alþjóðamálum og smáríkjafræðum. Leitast er við að vinna að rannsóknaverkefnum með erlendum fræðimönnum og áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf. Auk þeirra ríflega hundrað fræðimanna sem eiga aðild að stofnununum tveimur tengjast stofnanirnar fjölda erlendra rannsóknastofnana.
Þjónustuverkefni
Markmið Alþjóðamálastofnunar er að auka samstarf á milli fræðimanna, atvinnulífs og opinberra aðila á sviði alþjóðamála. Stofnunin býður upp á margháttaða þjónustu við atvinnulífið og hið opinbera, til dæmis skýrslugerð, gerð kannana og rannsóknaverkefna. Alþjóðamálastofnun gengst auk þess fyrir símenntunarnámskeiðum, ráðstefnum, umræðufundum og fyrirlestrum um efni sem varða starfsvið stofnunarinnar.
Alþjóðamálastofnun gætir hlutleysis og grundvallaratriði í starfi stofnunarinnar er að unnið sé á fræðilegan hátt að öllum viðfangsefnum. Leitast er við að fá erlenda fræðimenn til að vinna við flest þjónustu- og rannsóknaverkefni stofnunarinnar. Hið víðfeðma net fræðimanna eykur til muna möguleika á samanburðarannsóknum milli landa sem dýpkar þannig gildi þjónustuverkefna.
Útgáfa
Alþjóðamálastofnun beitir sér fyrir öflugri útgáfu efnis um alþjóðamál á Íslandi. Gefin er út ritrýnd ritröð um smáríki í alþjóðakerfinu og einstakar viðameiri greinar um smáríkjafræði. Stofnunin stendur einnig fyrir fyrirlestraröðum, umræðufundum og ráðstefnum um alþjóðamál. Leitast er við að gefa út sem mest af því efni sem kynnt er og fjallað er um á vegum Alþjóðamálastofnunar.