Interesting Articles
Financial Crisis in Iceland and Ireland: Does EU and Euro membership matter? By Professor Peadar Kirby, University of Limerick Ireland, and Professor Baldur Þórhallsson at University of Iceland.
Iceland´s Economic Crash and Integration Takeoff: An End to EU Scepticism?
Article in Scandinavian Political Studies by Baldur Thorhallsson and Christian Rebhan

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun. Rannsóknasetur um smáríki starfar innan vébanda Alþjóðamálastofnunarinnar og fer sameiginleg stjórn með málefni beggja stofnananna. Alþjóðamálastofnun og Rannsóknarsetur um smáríki eru vettvangur fyrir þverfaglegt samstarf á sviði alþjóðamála og smáríkjarannsókna. Stofnanirnar eru vistaðar á Félagsvísindasviði.
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands var stofnuð árið 1990 en endurskipulagning hennar hófst í kjölfar undirbúnings að stofnun Rannsóknarseturs um smáríki haustið 2001. Undirbúningur að stofnun Rannsóknaseturs um smáríki hófst að frumkvæði Baldur Þórhallssonar dósents í stjórnmálafræði. Hugmyndin að Rannsóknarsetri um smáríki féll í góðan jarðveg bæði á Íslandi sem og erlendis og hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, m.a. verðlaun í hugmyndasamkeppninni Upp úr skúffunum sem Rannsóknaþjónusta HÍ og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins standa fyrir. Auk þess hefur Rannsóknasetrið fengið árlega styrki frá ERASMUS til þess að halda sumarskóla á Íslandi um smáríki í Evrópusamrunanum og þróa námsefni á vefnum. Rannsóknasetrið hefur einnig fengið styrki frá NORFA, Eystrasaltsráðinu og Impru.