Skrifstofa rannsóknarstofunnar er staðsett í Enni, stofu 204 v/Stakkahlíð, 105, Reykjavík, sími: 525-5524
Forstöðumaður Dr. Hrafnhildur Ragnarsdóttir hragnars@hi.is
Fyrirlestur dr. B
arböru Turner
laugardaginn 24. september kl. 11.00- 13.00 í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð
Sandleikur er aðferð sem gerir börnum og fullorðnum kleift að tákngera innri heim og vinna á skapandi hátt með dulvitað efni. Dr. Barbara Turner mun í fyrirlestri sínum ræða um hugmyndafræði, uppruna og þróun sandleiks og fjalla um þá aðferðafræði sem þar er beitt. Hún mun einnig greina frá hreyfiafli leiksins og sambandi skjólstæðings og meðferðaraðila. Í fyrirlestrinum mun dr. Turner sýna sandleiksmyndir eigin skjólstæðinga þar sem m.a. vinnuferli eins skjólstæðings í sandleik verður rakið frá upphafi til enda. Fyrirlesturinn er á vegum Rannsóknastofu um þroska, mál og læsi barna og unglinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Dr. Barbara Turner hóf nám í sandleik í Sviss árið 1988 undir handleiðslu Doru M. Kalff sem þróaði aðferðina. Dr. Turner hefur m.a. í doktorsritgerð sinni rannsakað ítarlega það ferli sem fram fer í sandleik út frá hugmyndafræði Jungs. Hún hefur ritað ótal greinar og bókakafla í fagtímarit og bækur og er höfundur undirstöðurits í sandleiksfræðum, The Handbook of Sandplay Therapy. Dr. Turner stundaði sálræna meðferð á fullorðnum og börnum út frá aðferðum greiningarsálfræðinga í rúm tuttugu ár. Hún kennir nú sandleiksfræði og veitir sandleiksfræðingum handleiðslu bæði á netinu gegnum Temenos Press Learning Center í Kaliforníu, en einnig á námskeiðum víða um heim. Dr. Turner er kennari við Academy of Play and Child Psychotherapy þar sem hún kennir sandleiksfræði.
Sjá nánar: http://www.barbaraturner.org/index.html
Við Menntavísindasvið HÍ er í boði meistaranám fyrir þá sem vilja sérhæfa sig í málþroska og læsi
Kennaradeild
Mál og læsi M.Ed. og MA, 120 einingar
Uppeldis- og menntunarfræðideild
Þroski, mál og læsi, MA, 120 einingar
Nánari upplýsingar er að finna undir


Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi hefur það meginmarkmið að afla vísindalegrar þekkingar á þroska íslenskra barna - með áherslu á málþroska og þróun læsis og ritunar og þeim þroskaþáttum öðrum sem mest tengjast námi, allt frá frumbernsku upp í gegnum unglingsár - og miðla þeirri þekkingu bæði til fræðasamfélagsins og til fagfólks og almennings.