
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands er sjálfseignarstofnun, stofnuð 1994 af Háskóla Íslands, Dómarafélagi Íslands og Lögmannafélagi Íslands.
Megintilgangur stofnunarinnar er að vinna að rannsóknum á lögfræðilegum þáttum mannréttinda, annast dreifingu á niðurstöðum þeirra og styðja við kennslu á þessu sviði. Stofnuninni er heimilt að rannsaka aðra þætti mannréttinda eftir því sem stjórn stofnunarinnar ákveður hverju sinni.