Rannsóknarstofa um jafnrétti, kyngervi og menntun

1.jpg

Hlutverk og markmið rannsóknarstofu um jafnrétti, kyngervi og menntun eru:

  1. að stunda rannsóknir á sviði kynjafræði og jafnréttis í skólum og í kennaramenntun
  2. að standa fyrir ráðstefnum, málþingum, fræðslufundum og útgáfum á sínu sérsviði.
  3. að stuðla að þróunarstarfi á fræðasviðinu bæði í kennaramenntun, á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla og við stefnumótun.
  4. að skapa ungum fræðimönnum aðstöðu til rannsókna, einkum meistara, -og doktorsnemum á fræðasviðinu.
  5. að vera samstarfsvettvangur fræðimanna á sviði jafnréttis, menntunar og kyngervis og fræðimanna á öðrum sviðum.
  6. að eiga samstarf við þá aðila sem móta stefnu og sjá um framkvæmdir á fræðasviðinu í samfélaginu.
  7. að hafa frumkvæði að og ástunda samstarf við erlenda aðila um rannsóknir á fræðasviðinu.
  8. að veita nemum í rannsóknartengdu framhaldsnámi tækifæri til að öðlast þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að sinna rannsóknum og námsverkefnum á vegum rannsóknarstofunnar.
  9. að stuðla að yfirsýn yfir rannsóknir á sviði jafnréttis, menntunar og kyngervis, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna meðal annars með útgáfu fræðigreina, fræðirita og með fyrirlestrum og málþingum.



Um starf Rannkyn

Rannsóknarstofa um jafnrétti, kyngervi og menntun var stofnuð 27. maí 2010.
Stjórn stofunnar fundar reglulega og ráðgjafarráðið hefur verið boðað til fyrsta fundar. Sjá fulltrúa í stjórn og ráðgjafarráði og reglur stofunnar á flipa hér til hliðar.

Eftir fund stofunnar með stjórn sviðsins þann 17. janúar 2011 var ákveðið að RannKyn stæði að rannsókn og þróunarverkefni um jafnréttismál kynja í skólum og kennaramenntun. Stefnt er að gagnsöfnun á eftirfarandi sviðum.

1.     Viðtöl við lykilaðila.
2.     Spurningarlisti til kennara Mvs.
3.     Rýnihópaviðtöl við kennarahópa af Mvs.
4.     Spurningalisti til kennaranema.
Það er von stofunnar að gott samstarf náist við samstarfsfólk á Menntavísindasviði um þetta verkefni.