Fræðasetur þriðja geirans

6.jpg




 

25. nóvember 2011.

Málþing Almannaheilla og Fræðaseturs þriðja geirans um þátt sjálfboðaliða í starfi frjálsra félagasamtaka

Fræðasetur þriðja geirans

 

Almannaheill - Samtök þriðja geirans

 


Almannaheill – samtök þriðja geirans og Fræðasetur þriðja geirans við Háskóla Íslands bjóða til málþings um þátt sjálfboðaliða í starfi félagasamtaka – í tilefni árs sjálfboðliða.

 

Fimmtudaginn 1. desember kl. 12-14 í stofu 103 á Háskólatorgi

 

Tilgangurinn er að auka möguleika félagasamtaka á að afla sjálfboðaliða og halda þeim, svo starf þeirra megi dafna. Farið verður í niðurstöður rannsókna þar sem sjálfboðaliðar sjálfir hafa sagt frá því hvað drífur þá og viðheldur áhuga þeirra á að bjóða fram krafta sína og þrjú ólík félög segja frá reynslu sinni. Í umræðum gefst tækifæri til að ræða efni dagsins og viðra og fá endurgjöf á eigin hugmyndir fyrir eigið félag. Í lokið verður sagt frá spennandi leið til að fá sjálfboðaliða erlendis frá. 

Dagskráin er sem hér segir:

Málþing Almannaheilla og Fræðaseturs þriðja geirans

um þátt sjálfboðaliða í starfi frjálsra félagasamtaka

Fimmtudaginn 1. desember kl. 12-14 í stofu 103 á Háskólatorgi

 

                             

 

Fundarstjóri: Ragna Árnadóttir formaður Almannaheilla

Athugið! Fólk frá sama félagi dreifi sér um salinn svo blandist vel í hópa á eftir.

12:00-12:20 Skipulag, öflun og stuðningur við sjálfboðaliða:

Steinunn Hrafnsdóttir dósent í félagsráðgjöf og forstöðumaður Fræðaseturs þriðja geirans

Fjallað um val á sjálfboðaliðum, hvaða aðferðum má beita til að ná til sjálfboðaliða og stuðning við þá. Meðal annars verður fjallað um rannsóknir á áhugahvöt (motivations) sjálfboðaliða og hvernig m.a. má nýta þær rannsóknir til að skipuleggja sjálfboðastarf.

 

12:20-12:30 Að afla sjálfboðaliða og draga úr sjálfboðaliðaveltu:

Haukur Árni Hjartarson sviðsstjóri sjálfboðaliðasviðs RKÍ í Reykjavík

Sjónum beint að stórum samtökum með langa reynslu og með mikinn fjölda sjálfboðaliða.

 

12:30-12:40 Að virkja félaga til sjálfboðavinnu:

Ólafur Proppé, formaður fræðsluráðs Bandalags íslenskra skáta og stjórnarmaður

Sérstaða samtaka sem byggja á félagsaðild og vilja auka þátttöku þeirra í sjálfboðastarfi.

 

12:40- 12:50 Að hafa verkefni og afla sjálfboðaliða:

Bjarni Gíslason fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar

Vandi lítilla félaga að hafa næg verkefni sem sjálfboðaliðar geta unnið og halda utan um þátt þeirra.

 

13:00-13:30 Skipt í hópa: 5 mínútna hugflæði um í hvers konar verkefni megi nýta sjálfboðaliða, gammurinn látinn geysa og allar hugmyndir, tengdar og ótengdar starfi hvers og eins, skráðar og þeim safnað saman.

20 mínútur til að ræða efni málþingsins og miðla og læra af öðrum. Hvetjum þá reyndu til að gefa sér tíma til að miðla.

 

13:30-13:55 Styrkir til að fá sjálfboðaliða í gegnum Evrópu unga fólksins:

Helga Dagný Árnadóttir verkefnastjóri EUF og Anna Lúðvíksdóttir hjá

SEEDS, SEE beyonD borderS, sem vinnur að skiptum á fólki milli landa til að auka gagnkvæman skilning og virðingu, í vinnu að góðum málum.

 

Til að auðvelda skipulag biðjum við ykkur vinsamlega að skrá ykkur á vef www.almannaheill.is /„Skráning á viðburð“ í neðra vinstra horni.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

 

Nánari upplýsingar: Anna Ólafsdóttir

Sími: 528 4404 / 857 1707

____________________________________________________________

31. maí 2011.

Tvær lotur kannana að fara af stað hjá Fræðasetri þriðja geirans!

Í síðustu viku voru send út á ríflega 700 forsvarsmenn félagasamtaka
kynningarbréf vegna væntanlegrar netkönnunar sem Fræðasetur þriðja geirans stendur fyrir. Að þessu sinni er um tvíþætta rannsókn að ræða. Í fyrsta lagi verður endurtekin sama könnunin og lögð var fyrir félagasamtök á heilbrigðis- og velferðsviði. Í annan stað mun F.Þ.G. fara áður ótroðnar slóðir og leggja sama spurningalista fyrir félög á íþrótta- menningar- og umhverfissviði. Í fyrri hópnum er um 144 félög að ræða en í hinum síðari er um liðlega 560 félög að ræða.

Ásamt áðurnefndu kynningarbréfi til félagasamtakanna fylgdi skýrsla um könnunina frá síðasta ári þar sem tíundaðar eru helstu niðurstöður. Einnig fengu allir svarendur yfirlit yfir eigin svör sem geta gagnast viðkomandi við samanburð og heildaryfirlit niðurstaðna. Það er eindregin von starfsfólks F.Þ.G. að svörun verði góð enda geta niðurstöðurnar gagnast fræðasamfélaginu, stjórnvöldum og félögunum sjálfum við heildarmat á starfsemi þriðja geirans á Íslandi og greiningu helstu þarfa og forgangsmála.

Á hlekkjunum hér að neðan má m.a. sjá umrædd kynningarbréf og svo skýrsluna um helstu niðurstöður könnunarinnar frá því í fyrra.

 

Eintak af kynningarbréfi til Íþrótta-, menningar- og umhverfisfélaga

Skýrsla með samantekt um helstu niðurstöður könnunarinnar árið 2010

______________________________________________________________________

     

20 apríl 2011.

Félagaþing Almannaheilla 2011 - þín þátttaka skiptir máli  

30. apríl 2011 kl. 09:00-14:00

í húsnæði Krabbameinsfélags Íslands að Skógarhlíð 8, 4. hæð


Almannaheill - samtök þriðja geirans hafa ákveðið að
efna til málþings með þjóðfundarsniði til að undirbúa lagasetningu um
frjáls félagasamtök. Félagaþingið verður haldið í húsnæði
Krabbameinsfélags Íslands að Skógarhlíð 8, 4. hæð þann 30. apríl 2011
kl. 09:00-14:00.


Viðskipta- og efnahagsráðuneytið vinnur nú að undirbúningi
heildarlagasetningar um þriðja geirann. Almannaheill efna af því tilefni
til málþings þar sem félagasamtökum gefst kostur á að koma á framfæri
sjónarmiðum sínum og hugmyndum. Eitt af markmiðum laganna verður að bæta
rekstrarumhverfi frjálsra félagasamtaka og gera þeim betur kleift að
sinna hlutverki sínu. Það er því afar mikilvægt að fulltrúar sem flestra
frjálsra félagasamtaka komi að þessu verkefni frá byrjun og taki þátt í
að móta lögin.

Mikil þátttaka gefur stjórnvöldum til kynna að þetta séu mál sem skipta
félagasamtök landsins máli. Við þurfum að sýna víðtæka samstöðu til þess
að fá rekstrarumhverfi okkar bætt, þ.m.t. skattareglur.

Því viljum við bjóða félagi/samtökum þínum að taka þátt og senda tvo fulltrúa til þingsins.

Vinsamlega skráið ykkur hér að neðan:

http://www.almannaheill.is/felagathing-almannaheilla-2011/


Dagskrá Félagaþings Almannaheilla 30. apríl 2011

09:00 Hús opnar.

09:30 Skráning

9:50-10:00 Inngangur

Fundarstjóri hefur nokkur inngangsorð um tilgang fundarins, dagskrána og útskýrir skiptingu borða í A og B.

10:00 - 10:45 Verkefni 1

Fundarstjóri les eina spurningu fyrir hvorn hóp:

  • - A-borðin: ,,Hvað þarf að vera til staðar í samfélaginu til að almannheillastarfsemi blómstri? (Hvernig vilt þú hafa framtíðarumhverfi almannaheillasamtaka?)"
  • - B-borðin: ,,Hvaða skilyrði ættu samtök/stofnanir/sjóðir að þurfa að uppfylla til að teljast almannaheillastarfsemi?"

10:45-11:00 Kaffihlé

11.00-11:30 Verkefni 2

Fundarstjóri les eftirfarandi spurningu fyrir bæði A og B borðin:

  • - ,,Til hvaða þátta þurfa heildarlög að taka?"

11:40-12:05 Verkefni 3

Fundarstjóri les upp þemu sem unnið verður með og hvað skal gera.

Öll borðin fá átta til tíu þemu til að vinna með - byggt á þeim flokkum sem fengu flest atkvæði.

12:05-12:40 Verkefni 4

Nú er borðum skipt upp í þemu. Hversu mörg þemu verða valin fer eftir
borðafjölda. Allir við borð fá mismunandi þemu og færa sig á viðeigandi
borð fyrir utan einn sem heldur kyrru fyrir auk borðstjóra og ritara.
Þátttakendur taka með sér allar hugmyndir undir eigin þemu.

12:40-13:10 Matur og kynningar

Boðið verður upp á súpu og brauð. Borðstjórar kynna helstu niðurstöður á hverju borði.

13:25 Slit

Fundarstjóri dregur saman í lokin.

Húsnæðið opið til kl. 14:00.

Muna að skrá sig hér: http://www.almannaheill.is/felagathing-almannaheilla-2011/

Frekari upplýsingar veitir:

Bergur Ólafsson

Verkefnisstjóri

Bergur@almannaheill.is

Gsm 662 8500

____________________________________________________________

6. apríl.

Áhugavert viðtal við Eddu Þórarinsdóttur, leikkonu.

 

Þriðjudagsmorguninn 5. apríl s.l. var áhugavert viðtal í þættinum Okkar á milli, á Rás 1. Viðtalið við Eddu er áhugavert hvað varðar þriðja geirann að því leytinu til að Edda hefur komið að sjálfboðaliðastarfi í tveimur merkum félögum. Störf hennar og aðkoma að Hjartaheill og Heilaheill eru tíunduð í áhugaverðu viðtali Steinunnar Harðardóttir við leikkonuna.

Áhugasamir geta hlýtt á þáttinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan eða á merki Rásar 1 hér að ofan.

Okkar á milli, þriðjudaginn 5. apríl.

 

___________________________________________________________________

17. mars 2011.

Mottumars í algleymingi!

Líkt og í fyrra er átak, fjársöfnun og vitundarvakning Krabbameinsfélags Íslands um krabbamein í karlmönnum í fullum gangi í marsmánuði. Helsta einkennið er áheitaherferð sem gengur út á að karlmenn safna forlátu yfirvaraskeggi og geta vinir, vandamenn og aðrir áhugasamir heitið á þá sem skarta sínu fínasta efri-varar-hári. Á vefsíðunni mottumars.is má sjá keppendur, bæði í einstaklings- og liðaflokkum, framlag þeirra og þeirra heildaráheit, sem safnast hafa.

Um er að ræða bráðskemmtilega og jákvæða keppni, sem hittir svo sannarlega í mark á ári sjálfboðaliðans enda mjög gott dæmi um virkjun einstaklinga í þágu góðs málefnis.

- Heimasvæði í einstaklingskeppni ,,Motturmars".

- Heimasvæði í liðakeppni ,,Mottumars".

 

Fræðasetur þriðja geirans óskar þátttakendum og aðstandendum átaksins góðs gengis og hvetur alla til að heita á einn eða fleiri keppendur í þessu skemmtilega en um leið þarfa átaki sem haldið er í anda sjálfboðaliðahugsjónarinnar.

____________________________________________________________________

5. mars 2011.

 

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Fræðasetur þriðja
geirans  boða til opins málfundar mánudaginn 7. mars kl. 12-13.15  í
Háskóla  Íslands, Lögbergi stofu 101

 

"Eru þjónustusamningar ekki að virka?"

Á fundinum verður fjallað um þjónustusamninga í velferðarþjónustu,
 gagnsemi þeirra og takmarkanir.  Tilefni fundarins er ný skýrsla
 Ríkisendurskoðunar um rekstur meðferðarheimila og viðbrögð Braga
 Guðbrandssonar forstjóra Barnaverndarstofu við efni hennar, en á
 vefmiðlinum www.visir.is undir fyrirsögninni? Tími einkarekinna
meðferðarheimila er liðinn? lýsir hann efasemdum sínum á framhaldi á
 slíkum rekstri.  Auk Braga Guðbrandssonar, ræðir  Ómar H Kristmundsson
prófessor í stjórnsýslufræðum m.a. aðdragandann að því að gerðir voru
 þjónustusamningar og dregur fram kosti og  galla þeirra.  Oddný G.
 Harðardóttir, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis ræðir
um viðhorf sín og stefnu stjórnvalda í þessum efnum.

 

2. mars 2011.

Vel heppnaðir Góðverkadagar haldnir vikuna 21-25. febrúar!

Landssamband íslenskra skáta ásamt fjölmörgum samstarfsaðilum héldu
góðverkadagana hátíðlega í síðustu viku. Um var að ræða átak þar sem
markmiðið var að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta
gott af sér leiða. Stefnan er að verkefnið verði haldið hátíðlegt ár
hvert, seinni part febrúarmánaðar. Með hliðsjón af þeirri staðreynd að
nú er ár sjálfboðaliðans hittir þetta átak vel á og má segja að þar sé
verið að hvetja til sjálfboðastarfa án þess að frumkvæðið byggi á
vettvangi formlegra félagasamtaka, heldur hjá einstaklingunum sjálfum.

Á heimasíðunni godverk.is, má finna upplýsingar um markmið og aðstandendur en við mælum sérstaklega með því að áhugasamir skoði ,,góðverk dagsins“
en þar sem þátttakendur segja frá sínu framlagi í þessu frábæra
framtaki íslenskra skáta og samstarfsaðila. Hér er á ferðinni frábært
framtak sem á svo sannarlega vel við á ári sjálfboðaliðans!

___________________________________

15. febrúar 2001.

 

Málstofa um mikilvægi heildarlöggjafar um starfsemi frjálsra félagasamtaka haldin við húsfylli!

  




Fræðasetur
þriðja geirans við Háskóla Íslands og Almannaheill héldu í sameiningu
hádegismálstofu um starfshóps um mikilvægi þess að setja heildarlöggjöf
um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana. Í afar vel
sóttri málstofunni flutti ráðherra erindi um niðurstöður skýrslu sem
unnin var m.a. í samvinnu við fulltrúa Fræðasetursins og Almannaheilla,
þau dr. Ómar H. Kristmundsson og Evu Þengilsdóttur. Eftir framsögurnar
sátu framsögumenn fyrir svörum og sköpuðust fróðlegar umræður um stöðu
og framtíðarsýn á rekstur og starfsumhverfi frjálsra félagasamtaka. 
Til
málstofunnar mættu fulltrúar helstu félagasamtaka og
sjálfseignarstofnana landsins sem margir hverjir vörpuðu fram spurningum
eða hugleiðingum um málefni er tengjast starfsgrundvelli og skattheimtu
ríkisins á frjáls félagasamtök. Einnig kom fram að mikilvægi þriðja
geirans hefur sjaldan verið jafn mikið og einmitt nú, en á sama tíma er
orðið erfiðara að afla fjár og starfsskilyrði hafa versnað. Í þessu
ljósi er mikilvægt að skapa frjálsum félagasamtökum og
sjálfseignarstofnunum betri rekstrarskilyrði með svipuðum hætti og
nágrannalönd okkar hafa gert í áratugi.

Skýrslu
starfshópsins um heildarlöggjöfina má finna á heimasíðu
velferðarráðuneytisins og hvetjum við alla þá sem málefnið varðar að
kynna sér vel innihald hennar.

Áhugasamir geta hlýtt á málstofuna í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Hádegismálstofa um heildarlöggjöf, 14 febrúar 2011.

Skýrsluna er að finna hér: http://www.velferdarraduneyti.is/frettir-vel/nr/32657

 

________________________________________________________________

11. febrúar 2011.

 

Almannaheill og
Fræðasetur þriðja geirans í samvinnu við velferðarráðuneytið efna til
hádegismálstofu um:

Mikilvægi heildarlöggjafar um
starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana
 

14. febrúar kl. 12:00-13:15 Lögbergi, stofu 101.   

 

Lagaleg skilgreining slíkra samtaka gæti gefið þeim skýrari
réttarstöðu og rekstrarumhverfi. Málstofan er haldin í framhaldi af
útgáfu skýrslu um mat á mikilvægi heildarlöggjafar um starfsemi frjálsra
félagasamtaka og sjálfseignastofnana sem nefnd á vegum félags- og
tryggingamálaráðherra skipaði þann 8.apríl 2009.

Mynd: Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarráðuneytis.

 

Dagskrá:

12:00    
Setning málstofu - Dr. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við Félagsráðgjafadeild HÍ

12:05    
Ávarp - Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarráðuneytis

12:15    
Er þörf á heildarlöggjöf um starfsemi frjálsra félagasamtaka? -
Niðurstöður nefndar félags og tryggingamálaráðherra. Dr. Ómar H.
Kristmundsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ

12:35     
Næstu skref - Eva Þengilsdóttir varaformaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

12:45    
Umræður

13:15    
Málstofu slitið

Fundarstjóri: Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla

Áhugasamir vinsamlegast skrái sig til þátttöku á hlekknum hér að neðan.

http://stofnanir.hi.is/thridjigeirinn/malstofa_mikilvaegi_heildarloggjaf...

______________________________________________________________________

9. febrúar 2010.

 

Upptaka frá hádegismálstofu um
matarúthlutanir.

 

Þann 21. janúar s.l. mættu yfir hundrað manns á hádegismálstofu
Fræðaseturs þriðja geirans og Almannaheilla um matarúthlutanir. Á
málstofuna mætti meðal annars Ævar Kjartansson, dagskrárgerðarmaður á
RÚV. Á hlekknum hér að neðan geta áhugasamir hlýtt á umfjöllun Ævars í
þættinum Í heyranda hljóði, sem fluttur var á Rás 1 þann 8. febrúar. Erindi framsögufólks og þær umræður sem fram fóru í kjölfarið má m.a. finna þar.

Upptaka frá hádegismálstofu um matarúthlutanir.

_____________________________________________________________________

 

24. janúar 2011.


Málefni Fræðasetursins og þriðja geirans á RÚV.

Málefni þriðja geirans voru ofarlega á baugi í þættinum Samfélagið í nærmynd,
sem fluttur var á Rás 1 að morgni mánudagsins 24. janúar. Þar mættu í
hljóðverið til Leifs Haukssonar, umsjónarmanns, þær dr. Steinunn
Hrafnsdóttir, dósent og annar forsvarsmanna Fræðasetursins og Guðbjörg
Andrea Jónsdóttir, forstöðukona Félagsvísindastofnunar.

Segja má að umræðuefnið hafi verið tvíþætt. Annars vegar kynnti
Steinunn Fræðasetrið og þau verkefni sem það stendur fyrir en einnig
upplýsti Guðbjörg um helstu niðurstöður könnunar, sem stofnunin
framkvæmdi á meðal skjólstæðinga félagasamtaka á sviði matarúthlutana.
Tilefni viðtalsins var m.a. hádegismálstofa Fræðasetursins og
Almannaheilla s.l. föstudag, en nánar verður fjallað um hana hér á
síðunni síðar í vikunni.

Áhugasamir geta hlítt á á viðtalið við þær Steinunni og Guðbjörgu með því að smella á tengilinn hér að neðan:

Samfélagið í nærmynd mánudaginn 24. janúar 2011.

______________________________________________________________________

16. janúar 2010

Hádegismálstofa og pallborðsumræður næstkomandi föstudag:

Fræðasetur þriðja geirans

í samvinnu við eftirtalin félagasamtök:

 

efna til hádegismálstofu um:

Matarúthlutanir: Neyðaraðstoð eða hluti af íslensku velferðarkerfi?

 Hádegismálstofa verður haldin föstudaginn 21. janúar kl.
12.00 til 13.30.í ráðstefnusal Radisson SAS(Hótel Sögu) v/ Hagatorg,
Reykjavík, í ráðstefnusal Harvard-1.

Þúsundir Íslendinga fengu úthlutað mat í desember síðastliðnum.
Sjaldan eða aldrei hafa jafnmargir Íslendingar leitað eftir aðstoð af
þessu tagi. Vegna umfangsins hafa myndast langar biðraðir þar sem fólk
þarf klukkustundunum saman að bíða eftir að fá aðstoð. Talið er að
hvergi annarsstaðar á Norðurlöndum þekkist að fólk standi í löngum
biðröðum til að fá matvæli í poka. Talsverð opinber umræða hefur verið
um þörfina á aðstoð þessari, hverjir það eru sem leita eftir henni,
fyrirkomulag hennar og hvort hún sé vísbending um alvarlega bresti í
íslenska velferðarkerfinu. Af þessu tilefni efnir Fræðasetur
þriðjageirans við Háskóla Íslands og Almannaheill - samtök þriðja
geirans til hádegismálstofu. Alls munu fimm framsögumenn taka til máls
en að því loknu verða pallborðsumræður.

Framsögumenn og dagskrá er sem hér segir.

Dr. Ómar H. Kristmundsson, Fræðasetri þriðja geirans mun setja málstofuna.

12.00: Setning málstofu. Dr. Ómar H. Kristmundsson.

12.05: Hver er staðan? Könnun á matarúthlutunum hjálparsamtaka:
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir kynnir helstu niðurstöður könnunar
Félagsvísindastofnunar Háskóla sem gerð var meðal skjólstæðinga þessara
hjálparsamtaka , af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

12.15 Hvað er til ráða? Stuttar framsögur um mat hjálparstofnana á fyrirkomulagi matarúthlutana og framtíðarsýn.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, Fjölskylduhjálp Íslands.

Ragnhildur Guðmundsdóttir, Mæðrastyrksnefnd.

Heiðar Guðnason, Samhjálp.

Vilborg Oddsdóttir, Hjálparstarfi Kirkjunnar.

12.55: Pallborðsumræður með þátttöku framsögumanna.

13.30 Málstofu slitið.

Fundarstjóri verður Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla.

Áhugasamir geta skráð sig með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Skráning á málstofu þann 21. janúar.

_____________________________________________________________________

30. desember 2010

Árið 2011 verður ár sjálfboðaliðans!

 

Á árinu sem er að líða var ákveðið að árið 2011 verði evrópskt ár
sjálfboðaliðans. Segja má að umrætt ár sé í raun hafið en þann 2.
desember síðastliðinn var verkefninu formlega ýtt úr vör. Verkefnið var
kynnt á blaðamannafundi í Brussel
viðstöddum fulltrúum Evrópuráðsins, Evrópusambandsins auk forsvarsmanna
sjálfboðasamtaka nokkurra landa, m.a. í Hollandi og á Írlandi. Af þessu
tilefni þessa stefna Fræðasetur þriðja geirans og Almannaheill að því
að halda í sameiningu málþing þessu tengdu auk þess sem hlutverki og
stöðu sjálfboðaliðastarfs á Íslandi verða gerð sérstök skil hér á
heimasíðu setursins á næstunni.   Hægt er að kynna sér betur þetta verkefni með því að smella á myndirnar hér að neðan.

 

 

 

 

_________________________________________________________________

19. desember 2010

Erfitt skattaumhverfi fyrir góðgerðarfélög.

Í umræðum á Alþingi um fjárlagafrumvarp næsta árs, lagði Eygló
Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins fram breytingartillögu er
víkur að skattalegu umhverfi góðgerðarfélaga. Tillagan gekk út á að slík
félög yrðu undanþegin erfðafjárskatti, en um áramótin mun sá skattur
hækka úr 5% í 10%. Í stuttu máli var breytingartillagan felld, en félög á
borð við góðgerða-, líknar-, vísinda, trúar- og umhverfisfélög hefðu
notið góðs af þessari tillögu hefði hún orðið að lögum.

Frétt vísis.is af tillögunni meðferð hennar má lesa með því að smella á tengilinn hér að neðan:

,,Segir skattaumhverfi góðgerðarfélaga vera erfitt hér."

 

Í síðasta mánuði spurði Eygló almennt um skattalega stöðu frjálsra
félagasamtaka á Íslandi. Fyrir áhugasama má horfa og hlusta á svar
fjármálaráðherra og umræður í kjölfarið á tenglinum hér að neðan:

Skattaleg staða frjálsra félagasamtaka, 22. nóvember 2010.

________________________________________________________________

 

17. desember 2010

Engar reglur um hjálparstarf.

Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi Kirkjunnar,
telur nauðsynlegt að settar verði reglur eða reglugerðir um starfsemi
hjálparstofnanna. Vilborg kallar eftir meiri samræmingu og leikreglum í
samskiptum við hið opinbera en einnig skjólstæðinga þeirra félagasamtaka
sem um ræðir. Þetta kemur meðal annars fram í frétt Ríkisútvarpsins.

_________________________________________________________________

9. desember 2010:

Hugmyndir um setningu heildarlaga um félagasamtök og endurskoðun skattareglna.

Í nóvembermánuði spunnust umræður á Alþingi um stöðu og
rekstrarumhverfi félagasamtaka á Íslandi. Þar kom m.a. fram að uppi eru
áform um setningu heildarlaga um frjáls félagasamtök en einnig er áætlað
að endurskoða skattaumhverfi þeirra. Nánar er fjallað um málið á
heimasíðu Almannaheilla en einnig er hægt að smella á fyrirsögnina hér
að ofan til að lesa fréttina.

_________________________________________________________________

6. desember 2010:

Þann fimmta desember var alþjóðlegur dagur sjálboðaliðans en árið
2011 verður evrópskt ár sjálfboðaliðans. Af því tilefni birtist grein
þessu tengdu eftir Guðrúnu Agnarsdóttur um þriðja geirann, sem ber
yfirskriftina:

,,Vörpum ljósi á þriðja geirann."

_________________________________________________________________

 

2. desember 2010

Fræðasetur þriðja geirans vil benda áhugasömum á viðtal, sem birtist í
Fréttablaðinu og Vísi.is, þann 27. nóvember s.l. við Lars Svedberg um
þær áskoranir sem félagasamtök og sjálfseignastofnanir standa frammi
fyrir:

,,Þriðji geirinn er mikils virðis fyrir samfélagið í heild sinni"

 

__________________________________________________________________

1. desember 2010

Opnunarfundur Fræðasetur þriðja geirans


Föstudaginn 26. nóvember s.l. var stofnfundur Fræðaseturs þriðja geirans haldinn í Odda, stofu 101, frá kl. 15.00  til 17.00.

___________________________________________________________________


22. nóvember 2010:

Föstudaginn 26. nóvember verður haldinn stofnfundur Fræðaseturs
þriðja geirans.Meðal framsögumanna verður sænski fræðimaðurinn Lars
Svedberg....

Sjá nánar hér...

2011 verður ár sjálfboðaliðans

Á árinu sem er að líða var ákveðið að árið 2011 verður evrópskt ár sjálfboðaliðans af hálfu Evrópuráðsins. Segja má að þetta verkefni sé í raun hafið en þann 2. desember síðastliðinn var verkefninu formlega ýtt úr vör. Þetta verkefni var kynnt á blaðamannafundi (http://ec.europa.eu/avservices/player/streaming.cfm?type=ebs&sid=170561)
 í Brussel að viðstöddum fulltrúum
Evrópuráðsins, Evrópusambandsins auk forsvarsmanna sjálfboðasamtaka nokkurra
landa, m.a. í Hollandi og írlandi. Af þessu tilefni þessa stefna Fræðasetur
þriðja geirans og Almannaheill að því að halda í sameiningu málþing þessu
tengdu auk þess sem hlutverki og stöðu sjálfboðaliðastarfs á Íslandi verður
gerð sérstök skil hér á heimasíðu setursins.  Hægt er að kynna sér betur þetta verkefni á neðangreindum heimasíðum:

Vefsvæði tileinkað sjálfboðaliðastarfi á vegum Sameinuðu
Þjóðanna.(UNV)

http://www.worldvolunteerweb.org/iyv-10/doc/eyv-2011-iyv-10.html

Heimasíða Árs sjálfboðaliðans 2011

header

http://www.eyv2011.eu/

 

Miðstöð sjálboðastarfs í Evrópu (European volunteer centre)

http://www.cev.be/1-news_home-EN.html